Ljósiđ

Áhugaverđ námskeiđ
Það er margt spennandi framundan hjá okkur.Smile
Námskeið fyrir nýgreinda:
Að virkja eigin kraft (8 vikur) hefst aftur mánudaginn 12. apríl kl 10-12.  Námskeiðið hefur notið mikilla vinsælda og gefið þátttakendum mikið.  Er ætlað þeim sem greindust á sl einu og hálfa ári.  Umsjón: Magnea B. Jónsdóttir, sálfræðingur.  Skráning hafin.
Námskeið í Heilsueflingu
(9 vikur í fyrirlestrarformi) hefst miðvikudaginn 7 apríl kl. 10:30-12:00. Skemmtilegt og fræðandi námskeið um allt er viðkemur heilsu, lífsstíl og eflingu lífsgæða. Hefur einnig notið mikilla vinsælda.  Umsjón: Berglind Kristinsdóttir iðjuþjálfi, aðstandendur einnig velkomnir. Skráning hafin.
Námskeið fyrir aðstandendur: 
Mjög fræðandi og uppbyggjandi námskeið (7vikur)  fyrir aðstandendur 18 ára og eldri hefst aftur miðvikudaginn 7.apríl  kl 19:30-21:30. Umsjón: Magnea B Jónsdóttir sálfræðingur.
Handverkshópar:
Skemmtileg námskeið í Tiffanys lampagerð. Leðursaumur í vél. Trétálgun, ótrúlega flottir hlutir.

Skartgripagerð, perlur, gler.  Saumagallery, lærðu að sauma. Prjónakaffi. Leirlist. Þæfing. Fluguhnýtingar. Bútasaumur. Mósaik.

Vinsamlegast hafið samband varðandi hópa.

 
Kraftur - Frćđsla
kraftur.jpg

  Fræðslufundur um Kynlíf og krabbamein

Þriðjudaginn 2. mars kl. 20:00-22:00 býður Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein, upp á fræðslufund um kynlíf og krabbamein. Farið verður yfir það hvernig krabbameinsmeðferð getur haft áhrif á kynlíf ungs fólks, líkamsímynd og margt fleira sem við höfum e.t.v. ekki kjark til að tala um. Fyrirlesarar eru Kraftsfélagarnir Hildur Björk Hilmarsdóttir, viðskiptafræðingur og Sigríður Ásta Eyþórsdóttir, iðjuþjálfi (Sassa). Þær byggja fyrirlesturinn á ráðstefnu sem þær sóttu erlendis, eigin reynslu og annarra. Boðið verður upp á léttar veitingar og allir eru hjartanlega velkomnir í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 þar sem Kraftur er til húsa.

 
Nýjar húfur og töskur

Nú hefur handverksfólkið okkar verið önnum kafið við að búa til nýjar flottar húfur og töskur sem margir hafa beðið eftir. Erum einnig með fallegar skuplur og buff, allt á góðu verði.

hufa1.jpghufa2.jpgtaska1.jpg

 

taska2.jpgbuff1.jpgbuff2.jpg   skuplur1.jpg

 
Ţiđ getiđ styrkt gott málefni.

avon-printad_litil.jpg

Act ehf. er umboðsaðili Avon snyrtivara og Remington hársnyrtitækja.
Við kaup á vörum frá Act ehf. mun renna rausnarleg upphæð af hverri sölu til Ljóssins sem er endurhæfingarmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein. 
Munið að við kaup þarf að nefna Ljósið.
Avon hefur framleitt vandaðar snyrtivörur í yfir 120 ár.  Úrvalið er mikið, húðvörur, förðunarvörur, ilmvörur, hárvörur ofl. 

Þið fáið vörurnar frá Act á heildsöluverði og munar um það.

Act ehf. Dalvegi 16, Kópavogi (keyrt inn við Europris og inn götuna)

 

 
Fréttabréf Ljóssins 2010 - lýsing á námskeiđum

Fréttablað 2010

logo_ljosid_big.gif

Smelltu á merki Ljóssins til að lesa fréttablaðið, opnast í pdf. 

 
Ný námskeiđ veturinn 2010

namskeid_jan_2010.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Smelltu á myndina til að skoða betur

(opnast í pdf)

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 7 af 15

Viltu styrkja Ljósiđ

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

 

Tćkifćriskort

stulka_forsida.jpg

Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.

Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort. 

 

Um Ljósiđ

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira
8.jpg

Finndu okkur á Facebook

Ţú ert hér:Forsíđa
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770