Nú fer
vetrarstarf Ungliðahóps SKB, Krafts og Ljóssins af stað á nýjan leik.
Hópurinn er fyrir fólk á aldrinum 18-30 ára sem hefur annað hvort
greinst með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni eða er aðstandandi
einhvers sem hefur greinst. Hópurinn mun hittast annan hvorn fimmtudag í
vetur og nú er komið að fyrsta fundi. Hann verður fimmtudaginn 8.
september klukkan 19:00 í Ljósinu, Langholtsvegi 43. Þar verður dagskrá
vetrarins kynnt og farið verður yfir haustferð hópsins sem er á næsta
leiti. Boðið verður upp á léttar veitingar og eitthvað sprell. Nýjir sem
gamlir félagar eru boðnir velkomnir en markmið hópsins er að hlúa að
sekmmtilegu og fræðandi starfi fyrir ungt fólk og gefa því tækifæri til
að hittast og ræða málin.
Næsti fundur er fimmtudaginn 8. september klukkan 19:00 í Ljósinu, Langholtsvegi 43.
Endilega látið berast ef þið þekkið einhvern á þessum aldri sem hefði gaman af því að koma.
|
|
|
Unga fólkið og líkamsrækt |
Líkamsrækt í Hreyfingu fyrir ungt fólk
ca 18-39 ára.
Haukur sjúkraþjálfari mun stýra hópum í tækjasalnum fyrri ungt fólk sem hefur fengið krabbamein og vill byggja sig upp undir handleiðslu fagaðila. Hóparnir verða í Hreyfingu í Glæsibæ..á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:30
Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 6 sept.
Skráning hjá Ljósinu í síma 5613770
|
|
|
Nýtt! Yoga - eftir hádegi |
|
Ertu að vinna, eða áttu erfitt með að vakna á morgnana. Viltu prófa að vera í jóga og góðum teyjuæfingum eftir hádegi á þriðjudögum kl.13:00
Jóga með Birgittu Guðmundsdóttur.
Jóga og teyjur er góð leið til að auka vellíðan og almennan liðleika.
Tímarnir hefjast þriðjudaginn 6. September
Verð: 400 kr. tíminn
Láttu þér líða vel
Vinsamlegast skráið ykkur í síma 5613770 svo að við vitum hver áhuginn er.
|
|
|
Nýtt námskeið í samvinnu við Lótushús |
|
Viltu stjórna eigin hugsunum og læra að hugleiða.
Tími: Mánudagar kl: 10:00-11:30, 4 skipti.
Hefst : 5 september
Jákvæð hugsun: „Þú ert það sem þú hugsar!"
Hugsanir mínar um eigið sjálf og aðra hafa bein áhrif á sambönd mín, bæði sambandið við sjálfan mig og aðra. Traust, kærleikur, virðing, skilningur og góð samskipti einkenna öll góð sambönd. Er ég minn eigin vinur og félagi?
Hugleiðsla: Viltu læra að iðka hugleiðslu?
Hugleiðsla hefur í gegnum aldirnar verið ein einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að öðlast jákvæðara og kyrrara hugarástand. Hugleiðslan hjálpar okkur að læra að ríkja yfir eigin huga, öðlast sanna sjálfsvirðingu og virkja þá góðu eiginleika sem innra með okkur búa.
Markmið námskeiðisins:
Markmið námskeiðisins er að veita aukinn skilning á eðli hugsanana og kyrra hugann með hugleiðslu. Þú munt læra einfaldar aðferðir til að tileinka þér jákvæðara og uppbyggilegra viðhorf heima fyrir, í vinnunni og í samskiptum þínum við annað fólk.
Skráning í Ljósinu í síma 561-3770, Verð kr. 2000,-
|
|
|
Nú er hægt að kaupa bolla með merki Ljóssins, á bollanum stendur:
Ég styrki Ljósið.
Bollinn kostar 2000 kr
Öll sala af bollanum fer til styktar Ljósinu.
|
|
|
Ljósið hefur fengið til einkasölu bleik og blá TIVOLI útvörp - þessi æðislegu útvörp eru á sérstöku Ljósa-verði aðeins 19.900 krónur,tækin kosta út úr búð 35.000 krónur.Hægt er að tengja I-pod og heyrnatól við tækið.
Ljósið fær til styrktar 5000 kr. af hverju tæki. Flottar gjafir og styrkir um leið gott málefni.
|
|
|
Ljósinu barst gjöf á dögunum frá Höllu og Ásgeiri eigendum Prentun og Pökkun Það voru 40 bollar og 40 diskar sérmerktir Ljósinu.Þökkum við þeim hjartanlega fyrir þessa fallegu gjöf sem hefur vakið mikla lukku í Ljósakaffinu.
|
|
|
Ljósinu barst gjöf frá Bókaútgáfunni Sölku ,
þetta eru uppbyggilegar bækur og fræðandi og eru á bókasafni Ljóssins
Einnig bíður Salka ljósberum að versla Sölku í
Skipholti 50c og fá
10 % afslátt.
Bókagjöf frá Sölku
Nafn bókar Höfundur
Fegraðu
líf þitt Viktoría
Moran
Hreystin
kemur innan frá Maria
Costantinno
Skyndibitar
fyrir sálina Barbara
Berger
Fleiri
skyndibitar fyrir sálina Barbara
Berger
Hugræn
tækni Barbara
Berger
Lífsreglurnar
fjórar Don Miguel
Ruiz
Mataræði Michael
Pollan
Síðasti
fyrirlesturinn Randy
Pausch
Ótuktin Anna
Pálína Árnadóttir
The
Secret/Leyndarmálið Rhonda
Byrne
Talað út
um lífið og tilveruna Jónína
Leósdóttir
Út í
birtuna Arnfríður
Guðmundsdóttir/ Æja-Þórey Magnúsdóttir
Postulín
Freyja
Haraldóttir/Alma Guðmunds
|
|
|
Ljósið
endurhæfing og Sjúkraþjálfun
Styrkur hafa tekið upp formlegt samstarf. Með samstarfi þessara
endurhæfingastöðva er boðið upp á fjölbreytt úrræði fyrir krabbameinsgreinda
einstaklinga, bæði karlmenn og konur. Þjónustan er bæði einstaklingsmiðuð en
jafnframt er lögð áhersla á þátttöku í hópum.
G. Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari
mun vinna bæði hjá Ljósinu og Styrk og verður þannig samnefnari fyrir báðar
stöðvar.
Mikil þörf er á heildrænni þjónustu
fyrir þennan hóp einstaklinga og samstarf Ljóssins og Styrks þáttur í því að
svara þeirri eftirspurn.
Hópþjálfun:
(gott fyrir þá sem treysta sér ekki í Hreyfingu líkamsræktarstöð)
Fyrir þá sem
vilja liðkandi og styrkjandi æfingar sem auka
úthald og getu og vinna gegn kvillum í stoðkerfi. Æfingarnar taka tillit til kvilla sem geta
fylgt krabbameinsgreiningu. Þjálfunin hentar einnig konum vel með
sogæðavandamál.
Fyrsti tíminn hefst mánudaginn 7 febrúar kl: 15:00 (Blandaður
hópur).
Staðsetning: Styrkur sjúkraþjálfun Höfðabakka 9, 110
Rvk
Fólk er beðið um að hringja í Styrk og panta tíma S:
587-7750 hjá Hauki sjúkraþjálfara.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 15 - 24 af 36 |