Ljósið

Nýtt námskeið - Styrking vonar og lífskrafts

hope.jpg

Fyrir fólk sem hefur greinst oftar en einu sinni eða er með langvinnt krabbamein.

 Hefst: 24.apríl  – þriðjudagar frá kl. 13:00-15:00 – 8 skipti.


Umsjón: Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur, (MS í krabbameinshjúkrun og diploma í hugrænni atferlismeðferð.

Gestafyrirlesarar: Iðjuþjálfi og næringarráðgjafi.
Markmið: Að þátttakendur auki jafnvægi í daglegu lífi og með því starfshæfni, vellíðan og von í gegnum fræðslu, umræður og eflandi verkefni. Þarna gefst tækifæri til að hitta aðra í sömu sporum, fá stuðning og fræðslu við að þekkja eigin tilfinningar, hugsanir, huga að sjálfsmyndinni, næringu og slökun.

Lesa meira...
 
Námskeið í Heilsueflingu
 
empowerment.jpgNýtt námskeið í Heilsueflingu hefst 18.apríl.
Námskeiðið er í 9 vikur frá kl:10.00-12.00
Umsjón hefur Berglind Kristinsdottir iðjuþjálfi auk gestafyrirlesara
 
Heilsueflingarnámskeiðið hefur verið mjög vinsælt og látið mjög vel af því.
Skráning hafin í Ljósinu í síma 5613770
 
 
Fræðslufundir fyrir karlmenn

karlarnir.jpgÞað var fjölmennur hópur karlmanna ásamt aðstandendum sem mætti á kynningarfundinn, en nú næstu 10 vikur taka við fræðslufundir eingöngu fyrir karlmennina.

Fundirnar eru á mánudögum frá  kl 17:30-19:00, 10 skipti. og hefjast þeir 13.febrúar.

  Umsjónarmaður er  Matti Osvald.

Markmið fundana er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu og hafi gagn og gaman að hitta aðra í sömu aðstæðum

Lesið nánar um fundina hér        Skráning er hafin í síma 5613770
 
Námskeið fyrir börn
 krakkar.jpg7-8-9 ára

(skráum niður annan aldur og söfnum í hópa)
Styrkjandi námskeið fyrir börn sem eiga nákominn aðstandanda sem hefur greinst með krabbamein.

Umsjón: Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur og Helga Jóna Sigurðardóttir, iðjuþjálfi með menntun í ævintýrameðferð    

Hefst: fimmtudaginn 23 febrúar kl. 16:30-18:00, 10 skipti

Skráning er hafin í Ljósinu í síma 5613770

Lesa meira...
 
Góðar fréttir úr Ljósinu...
Húsið er okkar !
 
langholtsvegur_-_hsi.jpg

Þann 19. október sl. festi stjórn Ljóssins kaup á húsnæðinu á Langholtsvegi 43. Þar með er framtíðarhúsnæði undir starfsemina tryggt.

Fyrir 6 árum var stofnaður húsnæðis- og minningarsjóður um Eyjólf Sigurðsson sem lést í júlí 2006.

Það má með sanni segja að íslenska þjóðin hafi fært okkur eignina í gegnum ýmis söfnunarverkefni og má þar nefna:

Minningastyrkirlykillinn.jpg

Landssöfnun í síma 2009

Ljósadagar með Steina göngugarpi

Átakið á allra vörum 2010

Lions- Kiwanis og Oddfellowklúbbar.

Um leið og við óskum öllum Ljósberum og velunnurum Ljóssins til hamingju sendum við þakkarkveðjur til allra sem hafa stutt okkur.

Lifi Ljósið

 

 
 
Kynnum nýja þjónustu

sirry-klippari.jpgHár og vellíðan er ný hársnyrtistofa sem Sirrý ljósberi var að opna á dögunum.

HÁR & VELLÍÐAN mun leggja áherslu á að þjónusta viðskiptavini sem vegna veikinda eða að öðrum
ástæðum þurfa á hárkollum að halda. Lagt verður upp úr að hafa gott úrval og að það verði það nýjasta nýtt hverju sinni og persónulegri þjónustu þannig að viðskiptavini líði vel og fái jákvæða upplifun af heimsókn sinni til okkar.

HÁR & VELLÍÐAN býður upp á almenna hársnyrtiþjónustu og leggur áherslu á náttúrulegar meðferðir fyrir hárið eins og hárspameðferðir, persónulega ráðgjöf um hárið og umhirðu þess.

HÁR & VELLÍÐAN mun einnig leigja hárkollur til viðskiptavina
sinna. Sniðugt ef viðkomandi langar að nota hárkollu við
sérstök tækifæri og hefur ekki fjárfest í hárkollu.
harvellidan.jpg

Sirrý leggur áherslu á notalegt og rólegt umhverfi með persónulega þjónustu þannig að viðskiptavininum líði sem best að koma á stofuna.

Allir ljósberar fá 15% afslátt af hársnyrtiþjónustu og 10 %afslátt af vörum

 

 
Vekjum athygli á nýjum heimasíðum

kynlfogkrabbamein.png

Markmið verkefnisins er tvíþætt:
Að bjóða krabbameinsgreindum einstaklingum og aðstandendum ókeypis kynlífsráðgjöf og sérhæfða ráðgjafaþjónustu klínísks kynfræðings
Að fræða og þjálfa þá sem koma að lækningu og hjúkrun krabbameinsgreindra þannig að umræðan um kynlíf/kynheilbrigði verði sjálfsagður þáttur í meðferð sjúklinga.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, klínískur kynfræðingur er sérlegur starfsmaður verkefnisins. Jóna Ingibjörg hefur margra ára reynslu af kennslu, ráðgjöf og rannsóknum innan kynfræða, enda afar vel menntuð í þessum efnum

Smellið á myndirnar til að fara inná síðurnar 

heild.is.jpg

Heild er ráðgjafa- og sálgæslusetur, sem sérhæfir sig í vinnu með einstaklingum sem eru á krossgötum eða eru að fara í gegnum breytingar í lífi sínu og þarfnast ráðgjafar og leiðsagnar.
Áhersla er á heildræna nálgun í ráðgjöf, sálgæslu og stuðningi.
Stofnendur eru Guðrún Kristín Þórsdóttir og Kristín Sigríður Garðarsdóttir. Báðar eru með mikla reynslu og þekkingu af ráðgjöf, sálgæslu og leiðsögn.

 

 
Ungliðastarfið 18-30 ára
unglidar.jpgNú fer vetrarstarf Ungliðahóps SKB, Krafts og Ljóssins af stað á nýjan leik. Hópurinn er fyrir fólk á aldrinum 18-30 ára sem hefur annað hvort greinst með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni eða er aðstandandi einhvers sem hefur greinst. Hópurinn mun hittast annan hvorn fimmtudag í vetur og nú er komið að fyrsta fundi. Hann verður fimmtudaginn 8. september klukkan 19:00 í Ljósinu, Langholtsvegi 43. Þar verður dagskrá vetrarins kynnt og farið verður yfir haustferð hópsins sem er á næsta leiti. Boðið verður upp á léttar veitingar og eitthvað sprell. Nýjir sem gamlir félagar eru boðnir velkomnir en markmið hópsins er að hlúa að sekmmtilegu og fræðandi starfi fyrir ungt fólk og gefa því tækifæri til að hittast og ræða málin.

Næsti fundur er fimmtudaginn 8. september klukkan 19:00 í Ljósinu, Langholtsvegi 43.
Endilega látið berast ef þið þekkið einhvern á þessum aldri sem hefði gaman af því að koma.

 

 
Unga fólkið og líkamsrækt
unglidar_-_hreyfing.jpgLíkamsrækt í Hreyfingu fyrir ungt fólk
ca 18-39 ára.

 

Haukur sjúkraþjálfari mun stýra hópum í tækjasalnum fyrri ungt fólk sem hefur fengið krabbamein og vill byggja sig upp undir handleiðslu fagaðila. Hóparnir verða í Hreyfingu í Glæsibæ..á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:30

Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 6 sept.

Skráning hjá Ljósinu í síma 5613770

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Úrslit 8 - 17 af 36
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740
Langholtsvegur 43 - 104 Reykjavík

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

6.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770