Ljósið

Fræðslufundir fyrir karlmenn PDF Prenta Rafpóstur
 
karlarnir.jpg
Nýtt námskeið hefst 6.febrúar - skráning er hafin í síma 5613770

Fræðslufundir fyrir karlmenn 

Mánudagar, umsjónarmaður fyrir Ljósið, Matti Ósvald

Fundirnir verða einu sinni í viku  á mánudögum  kl. 17:30 í 10 vikur,  Fræðslufundirnir hafa verið á dagskrá áður og gáfust vel.Markmiðið er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu, og hafi gagn og  gaman af að hitta aðra í sömu aðstæðum.Farið verður í gegnum það breytingarferli sem einstklingar ganga í gegnum við það að veikjast. Það verða fyrirlestrar um mikilvægi þess að byggja sig upp andlega og líkamlega og mikilvægi þess að setja sér markmið .
Fundarstjóri er eins og á fyrra námskeiðinu, Matti Ósvald heilsufræðingur. 

Þeir fagaðilar sem verða með fyrirlestur eru:  Helgi Sigurðsson, krabbameinssérfræðingur og prófessor, Högni Óskarsson geðlæknir og markþjálfi, Snorri Ingimarsson geðlæknir og krabbameinssérfræðingur, Daniel Reynisson í Krafti, Hannes Bjarni Hannesson  sjúkraþjálfari auk  jógakennara. Þá verður slegið á létta strengi og eldað með Ingvari sem var áður á  Salatbarnum.

Kaffi og létt meðlæti.

10 vikna fræðslunámskeið kostar kr. 5000,-.  

 

Dagskrá fundanna - Ath breyting á röðun fyrirlesara

 

13.feb  Lífið og tilveran Matti Osvald / Heilsufræðingur 

20.feb  Líkamleg uppbygging / Hannes Bjarni sjúkraþjálfari 

27. feb Reynslusaga úr eigin lífi fjölskyldan / Daníel í Krafti 

05.mars  Breytingarferli mannsins við veikindi / Berglind iðjuþjálfi 

12. mars Karlmennskan / Snorri geð og krabbam.læknir 

19.mars Ýmis fræðsla / Matti Osvald

26.mars  Kraftbirtingarhljómurinn / Högni geðlæknir-markþjálfi / 

02. apríl  Streita og slökun / Birgitta Guðmundsdóttir jógakennari

16. apríl Eldað saman og snjallar gamansögur / Ingvar kokkur   

23. apríl Ímyndir krabbameina / Helgi krabbameinslæknir

30.apríl Samantekt og lok námskeiðs / Matti Osvald
 

 

 
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740
Langholtsvegur 43 - 104 Reykjavík

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

1.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Starfsemi arrow Námskeið arrow Fræslufundir fyrir karlmenn
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770