Ljósiđ

Fyrirlestur og kynning PDF Prenta Rafpóstur
Fyrirlestur í Ljósinu með
Guðjóni Bergmann og kynning á Karitas, heimaþjónustu

gbergmann.jpg

Föstudaginn 13 mars kl. 10:30-11:30

heldur Guðjón Bergmann fyrirlestur

og kl. 11:30-12:00 kynnir Karitas heimaþjónusta sína starfmemi. 

 

  

Jákvætt hugarfar - jákvæð hegðun 

 

Fyrirlesturinn fjallar um muninn á jákvæðni og neikvæðni. Dregnar eru fram skilgreiningar sem geta gagnast einstaklingum að komast í gegnum erfiðar aðstæður sem kalla á lausnamiðaða nálgun. Jákvætt hugarfar snýst um að hugsa um lausnir, tækifæri, markmið og drauma. Jákvætt hugarfar ætti að leiða til jákvæðrar hegðunar.

 

Allir velkomnir, aðgangur ókeypis

 

 

 

Viltu styrkja Ljósiđ

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

 

Tćkifćriskort

stulka_forsida.jpg

Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.

Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort. 

 

Um Ljósiđ

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira
5.jpg

Viltu lćkka eldsneytisverđiđ?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu međ okkur á Facebook

Ţú ert hér:Forsíđa arrow Fréttir arrow Fyrirlestur og kynning
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770