| Finndu eldmóđinn |
|
|
|
|
Hvað gæti meiri eldmóður gefið þér? Geta allir fundið sinn eigin eldmóð? Rúna og Svanhvít koma í Ljósið miðvikudaginn 2.sept. kl:11.00 og segja frá tækifærinu sem felst í að finna sinn eigin eldmóð og hvað þarf til að viðhalda honum í lífi og starfi Rúna Magnúsdóttir og Svanhvít Aðalsteinsdóttir Markþjálfar og vottaðir Eldmóðsþjálfarar vinna þessa dagana að komu metsölurithöfundarins Janet Attwood sem verður með heilsdagsvinnustofu undir heitinu Finndu Eldmóðinn laugardaginn 5. September.
|
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.
Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort.

![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.