| Námskeið fyrir börn 6-9 og 10-13 ára |
|
|
|
Ljósið fer nú aftur af stað með styrkjandi námskeið fyrir börn og ungmenni sem eiga foreldri, systkini, ömmu, afa eða annan aðstandenda sem hefur greinst með krabbamein. Námskeiðið stuðlar að jákvæðri uppbyggingu og er mikið unnið með lífsgleðina í gegnum skemmtileg verkefni. Aðstandandi fylgir barninu í fyrsta tímann og síðasta tímann sem endar með pizzuveislu. Leiðbeinendur á námskeiðinu er með margra ára starfsreynslu í að vinna með börnum. Þær eru: Ósk Sigurðardóttir iðjuþjálfi, með sérmenntun í ævintýrameðferð og Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur. Námskeiðið verður á fimmtudögum kl. 16:30-18:00, 10 vikur, hefst þegar næg þátttaka er fyrir hendi. Námskeiðið er ókeypis og er skráning í síma 5613770 eða á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.
Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort.

![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.