Ljósiđ

Gengiđ á 10 tinda á 13 klukktímum til stuđnings Ljósinu. PDF Prenta Rafpóstur

Föstudaginn 28. maí ætlar Þorsteinn Jakobsson göngugarpur að ganga 10 tinda á 13 klukkutímum til stuðnings Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Tilefnið er 5 ára afmæli Ljóssins, og verður söfnunarfénu varið til kaupa á framtíðarhúsnæði.

Þorsteinn er mikill göngugarpur og hefur áður lagt Ljósinu lið við fjáröflun. Tindarnir sem hann gengur á eru: Stapatindar - Festarfjall - Þorbjörn - Keilir - Sandfell - Helgafell - Valahnjúkar - Húsfell - Búrfell - Esjan.

Þorsteinn mun hefja gönguna klukkan 5:00 að morgni 28. maí og byrjar á að ganga á Stapatinda. Smellið hér til að skoða kort af tindunum, opnast sem pdf

Þorsteinn Jakobsson er góður vinur Bjarkar Andersen Ljósbera, og er það fyrir tilstilli hennar að hann leggur þessa miklu göngu á sig, fyrir Ljósið.  Við erum Björk og Steina innilega þakklát fyrir framtakið.

Opið hús - í beinni á Bylgjunni

Bylgjan verður með beina útsendingu í húsnæði Ljóssins 28. maí að Langholtsvegi 43 og fylgst verður með göngunni og söfnuninni í bland við áhugaverð viðtöl og tónlist. Gestir og gangandi eru velkomnið að líta við skoða sig um og kynna sér starfsemina. Boðið verður upp á holla og næringarríka styrktarsúpu í hádeginu gegn vægu verði. (1000 kr)

Síðar um daginn eða kl. 14:30 er áætlað að Þorsteinn verði kominn að Esjurótum sem er síðasti tindurinn í göngunni. Búist er við að fjöldi manns muni taka þátt í að ganga upp fjallið og fagna svo náðum áfanga á toppi Esjunnar. Að lokinni Esjugöngu verður boðið upp á léttar og hollar veitingar. Við hvetjum alla til að koma með okkur upp Esju hlíðar.

Öllum er velkomið að taka þátt í hollri útivist og um leið styrkja gott málefni. Markmiðið er að afla fjár fyrir framtíðarhúsnæði fyrir þessa nauðsynlegu þjónustu sem Ljósið veitir.

Hringdu í eftirfarandi símanúmer ef þú hefur áhuga á að styðja Ljósið:

Frá og með 24.maí - 4.júní

 9071001-(1.000 kr) , 907-1003 (3.000),  907-1005 (5000 kr) sem dregst af símareikningi. Einnig verður hægt að heita á Þorstein á bylgjan.is eða hringja inn áheit í síma 561 3770.

Nánari upplýsingar veitir: Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins í síma:

561 3770 eða 695 6636

 
 

Viltu styrkja Ljósiđ

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

 

Tćkifćriskort

stulka_forsida.jpg

Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.

Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort. 

 

Um Ljósiđ

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira
8.jpg

Viltu lćkka eldsneytisverđiđ?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu međ okkur á Facebook

Ţú ert hér:Forsíđa arrow Fréttir arrow Gengiđ á 10 tinda á 13 klukktímum til stuđnings Ljósinu.
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770