| Dagur Ljóssins |
|
|
|
|
Þakkir til allra sem tóku þátt í Ljósadeginum okkar. Föstudagurinn 28 maí rann upp bjartur og sólríkur. Þorsteinn Jakobsson hóf gönguna á 10 tinda kl. 5:00 um morguninn. Hann hafði sett markið á 13 klukkutíma en lauk göngunni á 12 og ½ tíma. Á meðan Steini gékk á fjöllin þá var margt um manninn í húsakynnum Ljóssins að Langholtsvegi 43 eða á fjórða hundrað manns semlögðu leið sína í Ljósið og margir gæddu sér á ljúffengri grænmetissúpu og afmælisköku. Á meðan spiluðu þau Árni Ísleifsson á harmonikku og svo Ásstíðarkvartettinn frá Sinfoníuhljómsveit Íslands. Fyrr um morguninn kom hópur af útskriftarnemum úr leikskólanum Ásborg og söng fyrir gesti og gangandi. Eftir hádegið hittist stór hópur fólks við Esjustofu og hlýddu á söng frá frábærum listamönnum undir stjórn Valgeirs Skagfjörð, þar var frumflutt yndislegt ljóð og lag um Ljósið eftir Erlu Hallsdóttur og Valgeir. Bylgjubíllinn var á staðnum allan daginn með Hemma Gunn og Þorgeir Ásvalds innanborðs, þeir tóku viðtöl og gerðu deginum góð skil á Bylgjunni. Innilegar þakkir til ykkar allra sem komuð og tókuð þátt í þessum degi, margir lögðu hönd á plóginn til að gera þennan dag skemmtilegan og umfram allt ógleymanlegan. Látum Ljósið skína Ennþá er hægt að styrkja Ljósið með því að hringja í númerin 9071001-(1.000 kr) , 907-1003 (3.000), 907-1005 (5000 kr) sem dregst af símareikningi. Hægt verður að hringja til 4.júní
|
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.
Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort.

![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.