Ljósið

Aðstandendanámskeið PDF Prenta Rafpóstur
  

Námskeið fyrir aðstandendur krabbameinsgreindra

Um er að ræða 7 vikna námskeið þar sem skapaður er vettvangur fyrir aðstandendur til að hittast og ræða um reynslu sína, áhyggjur og þá líðan sem fylgir því að eiga náinn ástvin sem greinist með alvarlegan sjúkdóm.  Námskeiðið er samsett af umræðum, fræðslu og léttum slökunaræfingum. Mikilvægt er að skapa traust og tryggja trúnað til að þátttakendur geti óhindrað tjáð sig um það sem liggur á þeim. Það er líka lögð áhersla á það að hlæja og hafa það skemmtilegt á námskeiðinu.

Á námskeiðinu er fjallað um áfallið sem flestir upplifa þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein og rætt um þær tilfinningar sem oftast fylgja í kjölfarið. Áhrifarík reynslusaga sjúklings sem greindist með krabbamein fyrir nokkum árum er sögð og fjallað um áhrif þess á fjölskylduna og umhverfið. Rætt er um samskipti, ábyrgð og stuðning. Farið er í orsakir og afleiðingar streitu og leiðir til að fyrirbyggja og vinna á streitu. Í síðasta tíma er þeim sem hefur greinst með krabbamein boðið að koma og fjallað er um hvernig viðhorf og hugsanir hafa áhrif á líðan og atferli og hvernig hægt er að vinna með það.

Leiðbeinendur á námskeiðinu er Magnea B. Jónsdóttir sálfræðingur, Rósa Kristjánsdóttir djákni og Svandís Íris Hálfdánardóttir hjúkrunarfræðingur.

Námskeiðið er haldið á miðvikudögum frá kl. 19:30 - 21:30 í húsnæði Ljóssins.

 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

 

Tækifæriskort

stulka_forsida.jpg

Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.

Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort. 

 

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira
6.jpg

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Starfsemi arrow Námskeið arrow Aðstandendanámskeið
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770