Ljósiđ

Handverk PDF Prenta Rafpóstur

Í Ljósinu er boðið uppá ýmiskonar spennandi handverk, þar má nefna:

Glerskartgripagerð og Tiffanys glerlist

Ullarþæfing

Tréútskurður / tálgun

Bútasaumur

Málaralist

Leirlist

Prjónakaffi

Fluguhnýtingar ( eingöngu yfir vetrarmánuði )

Föndurhornið, er þar sem að Þóranna ræður ríkjum, með allskyns einfalt og sniðugt föndur.

Trémálun, þar sem eru málaðar skemmtilegar tréfígúrur.

Saumagallerí, þar sem er hægt að koma og sauma það sem hugur og hendur girnast.

Einnig er mjög vel útbúið smíðaverkstæði sem má nýta í hinar ýmsustu smíðar.

Í handverkshúsið hafa komið til okkar margir góðir gestakennarar og kennt okkur sínar listir, og hefur það vakið mikla lukku. Auglýst verður sérstaklega þegar verða námskeið með gestakennurum.

 

Viltu styrkja Ljósiđ

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

 

Tćkifćriskort

stulka_forsida.jpg

Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.

Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort. 

 

Um Ljósiđ

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira
5.jpg

Finndu okkur á Facebook

Ţú ert hér:Forsíđa arrow Starfsemi arrow Námskeiđ arrow Handverk
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770