Ljósið

Meðferð við sogæðabjúg PDF Prenta Rafpóstur

sjkrajlfun.jpg

Sogæðabjúgur getur meðal annars myndast í kjölfar skurðaðgerðar vegna krabbameins sérstaklega þegar margir eitlar eru fjarlægðir og eftir geislameðferð.  Ekki er hægt að segja til um hverjir fá sogæðabjúg eða hversu mikill hann verður. Sogæðabjúgur getur jafnvel komið fram mörgum árum eftir meðferð.

Sogæðabjúgur er vökvasöfnun sem verður vegna skertrar starfsgetu sogæðakerfisins í ákveðnum líkamshlutum. Eitlar og sogæðar mynda sogæðakerfið. Það liggur um allan líkamann og hlutverk þess er að fjarlægja umframvökva, eggjahvítuefni og bakteríur sem blóðrásin ræður ekki við. Sogæðakerfið er hluti af ónæmiskerfi líkamans. Venjulega er vökva skilað til baka í blóðrásina án þess að fólk verði þess vart. Þegar til dæmis eitlar eru fjarlægðir getur skapast ástand þar sem líkaminn ræður ekki við að flytja aukinn vökva sem myndast, t.d. þegar sýking kemur í sár,  við mikla áreynslu eða þar sem heitt er. Vökvinn safnast fyrir og bjúgur myndast.

Sjúkraþjálfarar með sérþekkingu í meðferð við sogæðabjúg geta bent á  leiðir til að draga úr líkum að sogæðabjúgur myndist og gefið viðeigandi meðferð þegar bjúgur er til staðar.

Meðferð við sogæðabjúg er margþætt og samanstendur af fræðslu, æfingum, sogæðanuddi og þrýstingsmeðferð.

 

 

 
 
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740
Langholtsvegur 43 - 104 Reykjavík

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

5.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Þjónusta í boði arrow Meðferð við sogæðabjúg
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770