Um Hár & Vellíðan
HÁR & VELLÍÐAN er hársnyrtistofa sem mun leggja áherslu á að þjónusta viðskiptavini sem vegna veikinda eða að öðrum ástæðum þurfa á hárkollum að halda. Lagt verður upp úr að hafa gott úrval og að það verði það nýjasta nýtt hverju sinni og persónulegri þjónustu þannig að viðskiptavini líði vel og fái jákvæða upplifun af heimsókn sinni til okkar.
HÁR & VELLÍÐAN býður upp á almenna hársnyrtiþjónustu og leggur áherslu á náttúrulegar meðferðir fyrir hárið eins og hárspameðferðir, persónulega ráðgjöf um hárið og umhirðu þess.
Sigríður M. Einarsdóttir (Sirrý)
hársnyrtimeistari útskrifaðist frá iðnskólanum í Reykjavík árið 1995. Hún hefur starfað við fagið síðan, bæði hér á Íslandi og í Danmörku. Sirrý hefur alltaf verið virk í faginu, hún hefur tekið virkan þátt í námskeiðum og keppnum, bæði hérlendis og erlendis. Sirrý var meðlimur í alþjóðasamtökum hársnyrtifólks Intercoiffure um tíma og hefur haldið fjölda námskeiða í faginu fyrir fagfólk.
Árið 2008 greindist Sirrý með bráðahvítblæði og þurfti að gangast undir sterkar lyfjagjafir og síðan tók við mergskipti í Svíþjóð. Fyrir henni var sá partur að missa hárið ákaflega erfiður.
Hún lagði mikið upp úr því að fá sér góðar hárkollur og klippti þær gjarnan sjálf til, til þess að þær virkuðu eins og eðlilegt hár og pössuðu tækifærum.
Í dag er Sirrý að vinna í að ná upp fyrra þreki og langar til að láta gott af sér leiða í leiðinni. Hún vil nýta sérþekkingu sína í faginu og eigin persónulegu reynslu og miðla henni til þeirra sem standa í þeim sporum að þurfa að missa hárið af einhverjum ástæðum.
Sirrý leggur áherslu á notalegt og rólegt umhverfi með persónulega þjónustu þannig að viðskiptavininum líði sem best að koma á stofuna.



Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær