| Stuðningahópar og svæðafélaög á landsbyggðinni |
|
|
|
Stuðningshópar krabbameinsfélaga á landsbyggðinni:
Akranes: Elja, stuðningshópur Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis, Kirkjubraut 40, Akranesi. Upplýsingar í síma 431 3372. Grundarfjörður: Von, stuðningshópur Krabbameinsfélags Snæfellsness, Borgarbraut 2, Grundarfirði. Upplýsingar gefur Margrét Hjálmarsdóttir, sími 864 1767.
Ísafjörður: Vinir í von, stuðningshópur Sigurvonar, Ísafirði. Fundir aðra hverja viku. Formaður er Heiðrún Björnsdóttir, sími 869 8286. Blönduós: Samhugur, Austur-Húnavatnssýslu. Formaður er Sigrún Grímsdóttir, sími 864 0538.
Sauðárkrókur: Dugur, Skagafirði. Fundir mánaðarlega. Gönguhópur starfandi. Formaður María Reykdal, sími 863 6039. Akureyri: Norðankraftur, Akureyri og nágrenni. Föndurdagar á Keramikloftinu, Óseyri 18, Akureyri, alla miðvikudaga frá kl. 13-18. Allir hjartanlega velkomnir og alltaf heitt á könnunni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu félagsins (KAON) sem er opin mánudaga og þriðjudaga frá kl. 13-16 s. 461 1470 eða senda tölvupóst á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Húsavík: Birta, Suður-Þingeyjarsýslu. Fundir annan hvern mánuð. Formaður er Hildur Baldvinsdóttir, sími 895 6768 netfang
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Reyðarfjörður: Styrkur á Austurlandi. Brekkugötu 9 Reyðarfirði sími 849 3446. Upplýsingar gefur Anna Ragnheiður Gunnarsdóttir, sími 869 0810. Höfn í Hornafirði: Stuðningshópur fyrir sjúklinga og annar fyrir aðstandendur. Upplýsingar gefur Ester Þorvaldsdóttir s. 663 9861 og 478 1400. Vestmannaeyjar: Stuðningshópur. Upplýsingar gefur Ester Ólafsdóttir sími 867 2218. Selfoss: Bandið, Árnessýslu. Fundir annan mánudag í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Upplýsingar gefur Rannveig Árnadóttir sími 482 3301. Reykjanesbær. Sunnan fimm, Suðurnesjum. Fundir annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 20. Upplýsingar gefur Anna María Einarsdóttir sími 421 6363.
Sjá einnig nánar hér hjá Krabbameinsfélagi Íslands |
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa
Pokinn kostar 1000 kr
Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló
Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum. Sjá nánar hér
![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.
Þjónusta í boði
Krabbameinsfélagið
Stuðningur og félög á landsbyggðinni