Ljósið

Slæðuhnýtingar í Ljósinu PDF Prenta Rafpóstur

Ljósið hefur boðið uppá kennslu í slæðuhnýtingum. Það var ljósberinn Aníta Berglind Einarsdóttir sem átti frumkvæðið af þessari kennslu. Eftir að hafa greinst með krabbamein og misst hárið fór hún að kynna sér möguleikana á öðruvísi og smart höfuðfötum fyrir konur sem misst hafa hárið. Það getur verið mikið áfall að missa hárið og margar konur geta ekki notað hárkollur, þá er gott að geta komið Ljósið og fengið leiðsögn með smart slæðuhnýtingar í notalegu umhverfi.

Hér eru góðar leiðbeiningar hvernig hægt er að binda slæður

Slæðuhnýtingarnámskeið eru auglýst sérstaklega.

Hægt er að fá leiðsögn í slæðuhnýtingum hjá Ernu Magnúsdóttir og Guðrúnu Ýr.

Erna ~ mánudagar frá kl: 13.00- 15.00
Guðrún Ýr  ~ fimmtudagar frá kl: 13.00 - 15.00

Vinsamlega látið vita af ykkur í síma 5613770

 

slaeda1.jpgslaeda2.jpg

 

  Sýnishorn af slæðuhnýtingum.

 
 

Viltu styrkja Ljósið

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740
Langholtsvegur 43 - 104 Reykjavík

Minningarkort

minning-kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

Möndlu / Spírupokar

s_grni.jpg 

 

 

 

 

 

Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa

Pokinn kostar 1000 kr

Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló

Málverka hornið

flettur_2011.jpgLjósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

6.jpg

Um Ljósið

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira

Hreyfing styrkir Ljósið

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum.     Sjá nánar hér

hreyfing_logo.png

     

Viðtal

Útvarpviðtöl við Ernu og Matta Ósvald heilsuráðgjafa á Rás 1 og Rás 2  vegna fræðslufunda fyrir karlmenn í Ljósinu. Smelltu hér til að hlusta

Viltu lækka eldsneytisverðið?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu með okkur á Facebook

Þú ert hér:Forsíða arrow Þjónusta í boði arrow Ljósið arrow Slæðuhnýtingar
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770