| Stuðningsnet Krafts |
|
|
|
|
Kraftur býður upp á stuðning fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og einnig fyrir aðstandendur þeirra. Stuðningsfulltrúar eru einstaklingar sem hafa annað hvort fengið krabbamein eða eru aðstandendur, og hafa lokið námskeiði í tengslum við Stuðningsnetið.
Ef þú hefur áhuga á að fá að ræða við stuðningsfulltrúa getur þú haft samband í 470 2700.
Sumir velja að ræða saman í síma meðan aðrir óska eftir að hitta
stuðningsfulltrúa sinn. Gyða Eyjólfsdóttir ráðgjafarsálfræðingur heldur
utan um stuðningsnet Krafts. Öll samtöl eru trúnaðarmál. Umsókn um að gerast stuðningsfulltrúiTil að gerast stuðningsfulltrúi þurfa að minnsta kosti tvö ár að vera liðin frá því að þú laukst krabbameinsmeðferð þinni. Ef þú ert aðstandandi er einnig æskilegt að tvö ár séu liðinn frá því að ástvinur þinn lauk meðferð. Það er nauðsynlegt að þú sért einnig að mestu búin(n) að vinna úr þeim tilfinningum sem krabbameinið hafði í för með sér svo þú eigir auðveldara með að styðja aðra. Það er kostur ef þú ert hlýleg(ur), næm(ur) á líðan annarra, einlæg(ur), sveigjanleg(ur), dæmir ekki og átt auðvelt með að hlusta á aðra.Hafir þú áhuga á að gerast stuðningsfulltrúi getur þú sótt um með því að smella á “umsókn” hér á eftir. Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina og sent hana inn, mun Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur hafa samband við þig og boða þig í viðtal þar sem farið verður yfir umsóknina og reynslu þína af krabbameini. Ef niðurstaða ykkar beggja er sú að þú sért tilbúin(n) til að gerast stuðningsfulltrúi þá þarftu að ljúka námskeiði fyrir stuðningsfulltrúa en námskeiðið er fjögur kvöld, þrír klukkutímar í senn. Þegar því er lokið getur þú hafið störf sem stuðningsfulltrúi. Allir stuðningsfulltrúar þurfa að sækja hóphandleiðslu einu sinni í mánuði. Smelltu hér til að sækja um að verða stuðningsfulltrúi: |
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa
Pokinn kostar 1000 kr
Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló
Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum. Sjá nánar hér
![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.
Þjónusta í boði
Krabbameinsfélagið
Kraftur - Stuðningsfélag fyrir ungt fólk
Stuðningsnet Krafts