Ljósiđ

Lótushús PDF Prenta Rafpóstur

lotus_hus.jpg 

Brahma Kumaris, Andleg fræðslumiðstöð (World Spiritual University) er heiti á alþjóðlegum samtökum sem stofnsett voru 1936 á Norður Indlandi. Skólinn rekur yfir 8500 hugleiðslumiðstöðvar í meira en 100 löndum víðsvegar um heiminn.

Skólinn hefur engan "gúrú" og sú þekking sem boðið er uppá nýtist fólki óháð kynstofni eða trúarbrögðum.

Brahma Kumaris er aðili að Sameinuðu þjóðunum sem samtök án landamæra, NGO. Einnig hafa samtökin ráðgefandi aðild að Efnahags- og þróunaraðstoð Sameinuðu þjóðanna sem og ráðgefandi stöðu í UNICEF, Barnahjálp stofnunarinnar.  Brahma Kumaris hefur hlotið ýmsar viðurkenningar frá Sameinuðu þjóðunum fyrir verkefni sem stuðla að alheimsfriði.

Auk hugleiðslunámskeiða sem haldin eru á miðstöðvum Brahma Kumaris út um allan heim hafa samtökin tekið virkan þátt í mótun samfélagsins og unnið með fjölmörgum opinberum stofnunum, m.a. spítölum, skólum og fangelsum. Einnig hefur Brahma Kumaris skipulagt og tekið þátt í margvíslegum umræðum um ýmis viðfangsefni jafnt á staðbundnum sem alþjóðlegum vettvangi og er markmiðið ávallt að stuðla að friði og auknum skilningi í heiminum.

Hvernig er starfsemi skólans fjármögnuð?
Skólinn hefur að leiðarljósi að andleg þekking sé réttur hvers einstaklings og þess vegna eru öll námskeið sem haldin eru á vegum skólans þátttakendum að kostnaðarlausu. Starfræksla miðstöðvanna er fjármögnuð með frjálsum framlögum leiðbeinenda og þátttakenda námskeiðanna.

Þrátt fyrir að skólinn sé skráður sem góðgerðarstofnun í mörgum löndum stendur hann ekki  fyrir peningasöfnunum. Fjármögnun á sér stað eingöngu í gegnum frjáls framlög þeirra sem góðs hafa notið af starfsemi skólans.

 

 Um Sigrúnu Olsen, stofnenda íslensku miðstöðvar Brahma Kumaris, Lótushús

 

Viltu styrkja Ljósiđ

Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins

reikn.no 0130-26-410420
kt: 590406-0740

Minningarkort

kross.jpgNú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu.  Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.

 

Tćkifćriskort

stulka_forsida.jpg

Erum með til sölu þetta fallega kort sem heitir Lítil stúlka með ljós í hendi, það var Ingibjörg Árnadóttir velunnari Ljóssins sem gaf það, en myndin er eftir Barböru Árnason.

Hægt að nota sem tækifæriskort,jólakort eða minningarkort. 

 

Um Ljósiđ

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Lesa meira
5.jpg

Viltu lćkka eldsneytisverđiđ?

orkan-lykill-litil.pngskeljungur-logo-litil.gif

 

 Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði.  Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla.  Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini.  Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.

Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni. 

En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.

Vertu međ okkur á Facebook

Ţú ert hér:Forsíđa
Ljósið | Langholtsvegi 43 | 104 Reykjavík | Sími 561-3770