| Listmeðferð |
|
|
|
|
Listmeðferð í Ljósinu
Listmeðferð snýst um að einstaklingurinn vinni með reynslur sínar og upplifanir í gegnum listsköpun og deili með öðrum. Þannig er hægt að þróa persónulega tjáningu og koma tilfinningum frá sér á uppbyggjandi hátt. Listmeðferð getur hjálpað til við að efla meðvitund um eigin tilfinningar, hugsanir og viðbrögð.
Að deila tilfinningum stuðlar að bættri andlegri og líkamlegri líðan.
Mikilvægt er að einstaklingurinn upplifi traust og öryggi til þess að geta tjáð sig frjálst með þeim efnivið sem er í boði. Aðal áhersla er lögð á sköpunina sjálfa (ekki útkomuna) og þá munnlegu tjáningu um tilfinningar og hugsanir sem upp koma. Megin tilgangur listmeðferðarfræðingsins er að halda utan um ferlið þannig að það stuðli að auknum sjálfsskilningi hvers og eins.
Margir af þeim sem hafa verið í listmeðferð í Ljósinu hafa orðað að þeir öðlist ró og meiri tengsl við sjálfan sig þegar þeir sitja í þögninni og skapa og við það að deila síðan upplifun sinni með hópnum hafa þeir fundið fyrir samkennd og skilningi.
-- Einkatímar í listmeðferð eru á föstudögum, tímapantanir eru í síma 5613770. |
Þú getur lagt inn frjáls framlög á styrktarreikning Ljóssins
Nú er hægt að kaupa falleg minningarkort í Ljósinu. Sigrún Lára Shanko, listakona og félagi í Ljósinu hannaði og málaði myndina sem er keltneskur kross.
Erum með til sölu möndlupoka, einnig notað til að spíra í og til að sigta safa
Pokinn kostar 1000 kr
Smelltu á myndina til að fá uppskrift af grænum djús frá Sollu á Gló
Ljósið er með til sölu málverk eftir tvo listamenn, þá Árna Rúnar og Garðar Jökulsson. Myndirnar hanga uppí Ljósinu til sýnis, einnig er hægt að skoða þær HÉR

Undanfarin ár hefur Ljósið
verið að efla líkamlega
endurhæfingu með því t.d. að vera í samvinnu við Hreyfingu,
Álfheimum. Sjá nánar hér
![]()
Við höfum nú gert samning við Skeljung þar sem þeir gefa ykkur 3 krónur í afslátt af hverjum lítra en Ljósið fær 2 krónur til að safna fyrir varanlegu húsnæði. Lyklarnir eru hérna hjá okkur í Ljósinu svo endilega komið og sækið ykkur lykla. Má einnig taka fyrir alla fjölskylduna og vini. Því fleiri lyklar sem fara út, því meiri notkun og við söfnum fljótt og vel fyrir húsinu okkar og allir græða.
Ljósið er 5 ára þetta árið og því tilvalið að stuðla að framtíðaröryggi svo það komi til með að lifa a.m.k næstu 100 árin. Endilega sendið áfram á þá sem þið þekkið og vilja styrkja gott málefni.
En ath það þarf að sækja lyklana hingað því þeir eru forritaðir fyrir Ljósið. Þeir eru ekki tengdir debet eða kreditkorti heldur notaðir áður en kortið er sett í.