| Menningarferð |
|
Álafosskvosin Menningarferð verður farin í Álafosskvosina á miðvikudaginn þann 27. Maí næstkomandi. Við hittumst í Ljósinu 10.15 og leggjum af stað kl. 10.30. Þeir sem vilja hitta okkur uppfrá, þá erum við komin 10.45. Í Álafosskvosinni er falleg gjafavöruverslun sem einnig selur lopa og prjónauppskriftir. Þar er líka Ásgarður, verkstæði fyrir þroskahamlaða og þau eru að gera virkilega fallegt handverk sem gaman er að skoða. Vonumst til að hitta sem flesta í smá sumarfíling í fallegu umhverfi. Frá Reykjavík er keyrt 6 hringtorg beygt til hægri og keyrt í 2 mínútur þar til komið er að stóru gulu húsi. Bendum á heimasíðurnar alafoss.is og asgardur.is
|