12 sporin. Andlegt feršalag
 
Kynningarfundur fyrir fyrsta námskeiðið verður 
haldinn í Ljósinu miðvikudaginn 3 júní
kl. 11:00 í húsnæði Ljóssins Langholtsvegi 43.
spor.jpg
 

Ljósið fer nú af stað með námskeið í 12 spora kerfinu frá miðjum ágúst nk. fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. 

Námskeiðið er uppbyggt fyrir einstaklinga sem vilja auka lífsgæðin bæði andlega og félagslega.   Notuð er vinnubók sem nefnist Tólf sporin - Andlegt ferðalag og er hún notuð sem persónuleg leiðsögn til að öðlast skilning á andlegum krafti sporanna.  Unnið er í litlum hópum og áhersla lögð á trúnað , traust og einlægni. Námskeiðið tekur 16 vikur einu sinni í viku og undir leiðsögn Guðrúnar Þórsdóttur djákna sem er með BA í sálarfræði, sérhæfingu í sálgæslu og nám í hugrænum atferlisfræðum.

Námskeiðið verður haldið  í Ljósinu á Langholtsvegi 43 og eru þátttakendum að kostnaðarlausu.