| Kasjúkarrý f. 4-6 |
|
2 msk kaldpressuð kókosolía* 2 rauðlaukar, smátt skornir 2 tsk lífrænt karrýduft (prófið þetta nýja lífræna frá Herbaria) ½ - 1 tsk gerlaus grænmetiskraftur* ½ tsk himalaya/sjávarsalt 10 cm bita af sítrónugrasi 1 limelauf (best ef það er ferskt - fæst í asíubúðum) smá biti ferskt chilli, skorið í litla bita 3 hvítlauksrif, smátt söxuð 4 cm biti fersk engiferrót, afhýdd og söxuð smátt 200g lífrænar kasjúhnetur* 1 dós kókosmjólk 1 dós salsa pronta frá LaSelva ½ blómkálshöfuð, skorið í passlega munnbita 1 rauð paprika, skorin í 1x1cm bita 100g snjóbaunir 25g ferskt kóríander (cilantro) smátt saxað Hitið olíuna í potti og mýkið laukinn þar í um 10 mín, bætið þá útí karrý + grænmetiskrafti + salti + sítrónugrasi + limelaufi + chilli + hvítlauk + engiferrót + kasjúhnetum og látið malla í 3-5 mín. Bætið þá blómkáli + paprika útí ásamt kókosmjólk + salsa pronta og látið sjóða í um 7-10 mín. Bætið snjóbaununum útí + ferskum kóríander rétt áður en þið berið matinn fram |