| Nýtt í Ljósinu |
|
Jóna Ágústa Ragnheiðardóttir og Guðrún Ingólfsdóttir svæðanuddarar munu verða hjá Ljósinu í vetur á mánudagsmorgnum. 45 mín, kosta kr. 3000,- Hvað er svæðanudd?
Svæðanudd eins og er stundað á Íslandi er í raun blanda af tveimur erlendum meðferðargreinum. Zonetherapi sem þýðir svæðanudd og reflexology sem þýðir viðbragða- og svæðameðferð. Hugmyndin á bakvið svæðanudd er að allir líkamshlutar eigi sér samsvörun á fótum og höndum. Að það til séu svæði eða viðbragðpunktar sem svara til hvers líffæris, innkirtils og allrar starfsemi líkamans í heild að líkaminn og líkamlegt ástand endurspeglist í fótunum. Með því að nudda eða þrýsta á þessi svæði koma fram jákvæð áhrif á líffærakerfi og uppskeran er slökum og jafnvægi. Það er líka samspil orkurása, kenningar um orkubrautir og punkta á orkubrautunum.
|