Sigrún Olsen myndlistarkona ólst upp á Íslandi en hefur auk þess búið og starfað í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Portúgal. Á níunda áratugnum urðu stórfelldar breytingar á lífi Sigrúnar í kjölfar þess að hún sigraðist á illvígum sjúkdómi. Auk hefðbundinna læknisaðferða hafði innri vinna Sigrúnar með hugsanir og tilfinningar og gjörbreyttir lifnaðarhættir hennar mikið að segja í bataferlinu. Árið 1997 kynntist Sigrún Brahma Kumaris samtökunum og stofnaði hún, ásamt Þóri Barðdal, íslensku miðstöð Brahma Kumaris, Lótushús. Sigrún hefur nú iðkað og kennt Raja Yoga hugleiðslu í rúm 10 ár og vegna djúps skilnings á áhrifum andlegrar iðkunar á heilsufar hefur hún orðið fjölmörgum, að liði.
|